STE-10270 1
Nánari leiðbeiningar um virkni og notkunarmöguleika Sjónvarpsþjónustu Símans má finna á www.siminn.is. Sjónvarpsþjónusta Símans er þjónusta Símans hf. sem aðgengileg er viðskiptavinum í gegnum mismunandi spilara, n.t.t. smáforrit og myndlykil Símans, eða þeim miðlum sem Síminn ákveður á hverjum tíma. Viðskiptavinir hafa val um hvaða spilari er notaður til að nálgast þjónustuna hverju sinni, þó m.t.t. leiðbeininga Símans. Smáforritið er aðgengilegt í verslunum viðeigandi tækja.
Með þjónustunni er viðskiptavini gert kleift að nálgast myndefni í línulegri dagskrá og myndefni eftir pöntun, þ.m.t. efni sem viðskiptavinur kann að hafa keypt svo sem á grundvelli sjónvarpsáskriftar eða kaup á sjónvarpsviðburði, hjá Símanum eða þriðja aðila. Leiðbeiningar um notkunarmöguleika þjónustunnar eru að finna á www.siminn.is.
Við virkjun og notkun á Sjónvarpsþjónustu Símans (einnig vísað til sem „þjónustan“) er unnið með persónugreinanlegar upplýsingar um rétthafa þjónustunnar (hér eftir „viðskiptavin“) og mögulega notanda þjónustunnar ef sá aðili er annar en viðskiptavinur, eins og nánar er kveðið á um í stefnu þessari.
Sjónvarpsþjónusta Símans er aðgengileg í gegnum mismunandi spilara, t.d. myndlykil frá Símanum eða smáforrit Símans (hér eftir „Appið“). Eftirfarandi umfjöllun tekur til vinnslu upplýsinga án tillits til þess hvers konar spilara viðskiptavinur notar til að nálgast Sjónvarpsþjónustu Símans, nema annað sé sérstaklega tilgreint.
Öll vinnsla á persónuupplýsingum, þ.m.t. öflun, skráning, vistun og meðferð þeirra á vegum Símans, lýtur lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og öðrum reglum sem settar hafa verið á grundvelli persónuverndarlaga („persónuverndarlög“). Síminn gætir þess að þeir þættir vinnslunnar sem Síminn hefur með höndum, sem ábyrgðaraðili vinnslu, í tengslum við notkun lausnarinnar séu í samræmi við slíka löggjöf.
Þar sem ákvæðum þessarar persónuverndarstefnu sleppir gilda ákvæði Persónuverndarstefnu Símans á www.siminn.is/skilmalar, svo sem í tengslum við gjaldfærslu þjónustu, upplýsingaöryggi og samskipti við viðskiptavini.
2.1. Virkjun
Til þess að nálgast Sjónvarpsþjónustu Símans þarf viðskiptavinur að auðkenna sig með öruggum hætti, t.d. rafrænum skilríkjum, í viðmóti viðkomandi spilara. Það auðkenni sem notað er þarf að passa við réthafa þjónustunnar, svo unnt sé að nálgast hana. Framangreindar upplýsingar eru einungis notaðar til að auðkenna viðskiptavin.
Við virkjun Sjónvarpsþjónustu Símans ber viðskiptavini jafnframt að staðfesta að hafa kynnt sér skilmála þjónustunnar og persónuverndarstefnu þessa. Í tengslum við slíka staðfestingu skráir og varðveitir Síminn upplýsingar um auðkenni (t.d. kennitölu), dagsetningu, tímasetningu og tegund spilara þegar staðfesting var veitt. Er framangreindum upplýsingum safnað í þeim tilgangi að staðfesta og sannreyna samningssamband við viðskiptavin og veitingu lögbundinnar fræðslu. Vinnslan er þannig nauðsynleg svo Síminn geti veitt Sjónvarpsþjónustuna.
2.2. Notkun
Við notkun á Sjónvarpsþjónustu Símans safnast og vistast sjálfkrafa ýmsar upplýsingar um áhorf og aðrar aðgerðir í spilara, n.t.t. upplýsingar um tíma, dagsetningu áhorfs, staðsetningu tækis og myndefni sem pantað var eða horft á, og vinnur Síminn með þær upplýsingar í þeim tilgangi að veita viðskiptavini þjónustuna (t.d. sýnt viðskiptavini hvaða efni hann hefur þegar horft á og hvenær), til að halda utan um notkunarsögu viðskiptavinar, veita tillögur um áhorf á sambærilegri tegund myndefnis á grundvelli notkunarsögu. Í þeim tilvikum sem viðskiptavinur pantar efni gegn greiðslu, m.a. áskrift eða stakan sjónvarpsviðburð (t.d. íþróttaviðburð eða tónleika), safnar Síminn upplýsingunum jafnframt í þeim tilgangi að sannreyna pantanir viðskiptavinar og til að geta gjaldfært fyrir slíka notkun. Þessi vinnsla er nauðsynleg svo Síminn geti veitt þjónustuna.
2.3. Búnaður
Við virkjun og notkun á Sjónvarpsþjónustu Símans safnast eftirfarandi upplýsingar um þann búnað sem notaður er til að tengjast þjónustunni, t.d. myndlykil eða snjalltæki:
• tegund og útgáfa stýrikerfis, • IP-tölu notanda, • einkvæmt auðkenni búnaðar (hafi notandi veitt tæki sínu slíkt auðkenni) Framangreindum upplýsingum er sjálfkrafa safnað og þær unnar í þeim tilgangi að afla vitneskju um notkun á þjónustunni og með þeim hætti getur Síminn aðlagað þjónustuna betur að þörfum notanda, sem og haft til staðar rekjanleika aðgerða sem notandi framkvæmir í spilara.
Vakin er sérstök athygli á því að auðkenni búnaðar (t.d. IP-tala eða WiFi) eru notaðar til að greina staðsetningu búnaðar notanda, n.t.t. út frá staðsetningu búnaðarins (landssvæði og/eða sveitarfélagi) þegar það tengist þjónustunni. Síminn vinnur með slíkar upplýsingar í þeim tilgangi að tryggja að Síminn veiti þjónustuna í samræmi við skilmála þjónustunnar og að notkun viðskiptavin á þjónustunni samrýmist einnig skilyrðum skilmálanna, þ.m.t. vegna skilyrða Símans og/eða þriðja aðila, og til að bæta gæði þjónustunnar. Upplýsingar um staðsetingu búnaðar eru einnig notaðar í tengslum við gerð persónusniðs, í tengslum við birtingu auglýsingar, nema viðskiptavinur hafi andmælt slíku persónusniði sérstaklega á sjálfsafgreiðsluvef sjónvarps, sbr. einnig gr. 2.4 og gr. 8.
2.4. Auglýsingar
Síminn áskilur sér rétt til að nota upplýsingar sem safnast um áhorf myndefnis í tengslum við notkun, sbr. gr. 2.2, ásamt upplýsingum um fjölskyldustærð, kyn, aldursbil og staðsetningu viðskiptavinar út frá landssvæði og/eða sveitarfélagi til að birta honum og notendum auglýsingar í gegnum Sjónvarpsþjónustuna. Auglýsingarnar geta bæði varðað vörur eða þjónustu Símans og vörur eða þjónustu þriðja aðila sem Síminn telur að viðskiptavinur og notendur geti haft áhuga á.
Þessi vinnsla byggir á lögmætum hagsmunum Símans og getur viðskiptavinur hvenær sem er andmælt þessari vinnslu, sbr. nánar gr. 8 í stefnu þessari.
Síminn aflar, skráir og vistar upplýsingarnar í þeim tilgangi að geta veitt viðskiptavini og notanda aðgang að Sjónvarpsþjónustu Símans, til að gera notanda kleift að nota þjónustuna, til að geta haldið utan um notkunarsögu og veitt tillögur að áhugaverðu myndefni er byggir á notkunarsögu, til að tryggja öryggi þjónustunnar, og veita notanda aðgang að myndefni í samræmi við sjónvarpsáskrift viðskiptavinar og/eða kaup á myndefni hverju sinni.
Þá eru upplýsingarnar notaðar til að tryggja gæði og virkni þjónustunnar og ef þörf krefur vegna stoðþjónustu og bilanagreiningu, meðal annars m.t.t. þess búnaðar sem notaður er hverju sinni til að nálgast þjónustuna.
Þá mun Síminn nota upplýsingarnar til að geta sett sig í samband við notanda í viðskiptalegum tilgangi, þ.á m. í þeim tilgangi að tilkynna notanda um breytingar á þjónustunni, svo sem á virkni þess eða stillingum. Slíkar tilkynningar kunna að berast viðskiptavinum beint í gegnum spilara eða með tilkynningu í Appið, sé slíkt notað.
Auk þess áskilur Síminn sér rétt til að nota upplýsingarnar í þeim tilgangi að birta viðskiptavini auglýsingar í gegnum Sjónvarpsþjónustuna sem Síminn telur að viðskiptavinur kunni að hafa áhuga á.
Síminn mun ekki nota upplýsingarnar í öðrum tilgangi nema heimilt sé skv. lögum, ella afla sérstaklega samþykkis viðskiptavinar eða eftir atvikum notanda fyrir slíkri vinnslu.
Þær upplýsingar sem unnar eru við notkun lausnarinnar eru vistaðar hjá eða á vegum Símans innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Síminn mun ekki nota upplýsingarnar í öðrum tilgangi eða afhenda þær þriðja aðila, að lögreglu frátalinni, nema á grundvelli lagaheimildar, stjórnvaldsfyrirmæla, dómsúrskurðar, skriflegs vinnslusamnings eða samþykkis notanda. Síminn áskilur sér þó rétt til að afhenda þriðja aðila ópersónugreinanlegar upplýsingar, s.s. um notkun Appsins og áhorf á auglýsingar, sbr. gr. 9 neðar.
Síminn gætir þess að varðveita einungis persónugreinanleg gögn um viðskiptavini og notendur Sjónvarpsþjónustu Símans í samræmi við lög og málefnaleg ástæða er fyrir hendi.
Vakin er athygli á því að í þeim tilvikum sem notandi eyðir Appinu í snjalltæki sínu eyðast sjálfkrafa þær upplýsingar sem voru notaðar til að klára innskráningarferli viðkomandi í Appinu. Þótt notandi hafi eytt Appinu úr snjalltæki sínu hefur það hins vegar ekki áhrif á gögn í kerfum Símans (t.d. áhorfssögu í sjónvarpi), sjónvarpsáskrift viðskiptavinar eða þjónustu Símans gagnvart viðskiptavini að öðru leyti.
Persónugreinanlegum upplýsingum um sjónvarpsnotkun, þ.m.t. áhorfssögu, er eytt sjálfkrafa að sex mánuðum liðnum frá því notandi
hefur eytt aðgangi sínum í viðmótinu. Vakin er athygli á því að uppsögn á sjónvarpsáskrift leiðir ekki til sjálfvirkrar eyðingar á slíkum gögnum, ef notandi er enn með virkan aðgang í viðmótinu.
Óski notandi þess að eyða tilteknum persónuupplýsingum sem tengjast Appinu og/eða sjónvarpsnotkun getur hann sent skriflega beiðni þar að lútandi til Símans, sbr. gr. 10.
Við innskráningu í þjónustuna ber viðskiptavinur ábyrgð á réttleika og áreiðanleika þeirra upplýsinga sem hann sjálfur skráir.
Síminn gerir viðeigandi ráðstafanir til að tryggja áreiðanleika við notkun þjónustunnar í gegnum mismunandi spilara, t.d. varðandi réttleika og uppfærslu upplýsinga um áhorf myndefnis.
Séu persónuupplýsingar óáreiðanlegar mun Síminn, með hliðsjón af tilgangi vinnslunnar, gera viðeigandi ráðstafanir til þess að þær verði leiðréttar eða þeim eytt.
Síminn gætir öryggis þjónustunnar og upplýsinganna sem unnar eru við notkun hennar með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að tryggja öryggi persónuupplýsinga, m.a. með það að markmiði að koma í veg fyrir mannleg mistök, þjófnað, svik eða aðra misnotkun á upplýsingum. Síminn takmarkar aðgang að upplýsingum við þá starfsmenn sem nauðsynlega þurfa slíkan aðgang til að ná fram tilgangi vinnslunnar. Starfsmenn Símans eru upplýstir um skyldu þeirra til að viðhalda trúnaði og öryggi persónuupplýsinga.
Viðskiptavinur og notandi hefur rétt til andmæla vinnslu Símans á persónuupplýsingum sem byggir á lögmætum hagsmunum Símans, telji viðkomandi að slík vinnsla sé ekki í samræmi við tilgang hennar, að meðalhófs sé ekki gætt eða ef hann telur að sama árangri sé hægt að ná með mildari aðferðum.
Þannig getur viðskiptavinur ávallt andmælt því að Síminn vinni með persónuupplýsingar hans til að beina að honum aðsniðnum auglýsingum, sbr. gr. 2.4.
Þá er einnig hægt að óska eftir því að fá upplýsingar um þá vinnslu sem á sér stað hjá Símanum um
viðkomandi, enda standi hagsmunir annarra því ekki í vegi. Sé beiðni samþykkt skal hún afgreidd eins fljótt og auðið er og eigi síðar en innan eins mánaðar frá móttöku slíkrar beiðni.
Viðskiptavinur og notandi kunna jafnframt að eiga rétt á að krefjast þess að röngum, villandi eða ófullkomnum persónuupplýsingum um þá verði leiðréttar og/eða þeim eytt.
Vilji viðskiptavinur eða notandi nýta þessi réttindi sín skal koma beiðni á framfæri annað hvort með skriflegum hætti á Þjónustuvef Símans, á www.siminn.is („Hafa samband“ eða „Netspjall“), eða með því að hringja í síma 550-6000.
Andmæli við vinnslu Símans á persónuupplýsingum hvað varðar aðsniðnar auglýsingar er hægt að koma á framfæri í gegnum sjálfsafgreiðsluvef Sjónvarpsþjónustu Símans á www.sjonvarp.siminn.is/stillingar.
Síminn skal bregðast við erindi eins fljótt og auðið er.
Síminn áskilur sér rétt til að vinna með og greina ópersónugreinanlegar upplýsingar um notkun á Sjónvarpsþjónustu Símans, s.s. til áframhaldandi vöruþróunar og/eða til að bæta virkni þjónustunnar.
Þá áskilur Síminn sér rétt til að veita þriðja aðila ópersónugreinanlegar upplýsingar er tengjast notkun á Sjónvarpsþjónustunni og áhorf á þeim auglýsingum sem birtar eru í gegnum Sjónvarpsþjónustuna.
Ábendingum vegna öryggismála, t.d. vegna veikleika eða öryggisbrests sem tengist þjónustunni eða þeim spilurum sem eru notaðir til að tengjast henni, skal tilkynna til Símans á netfangið security@siminn.is.
Annars konar ábendingar er unnt að koma á framfæri í síma 550-6000 eða í gegnum Netspjall á www.siminn.is.
Persónuverndarstefna þessi er gefin út af Símanum hf., síðast þann 1. október 2023, og gildir til þess tíma er ný persónuverndarstefna tekur gildi.